is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22007

Titill: 
  • Kynhegðun unglinga og samskipti þeirra við foreldra
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á unglingsárunum er það hlutverk okkar að finna sjálfsmyndina, það verða hraðar og miklar breytingar á þessum árum bæði andlega og líkamlega. Tengsl við foreldra á þessum árum breytast oft á tíðum, þar sem að unglingurinn þarf að laga sig að aukinni ábyrgð, nýjum hlutverkum og hann verður sjálfstæðari. Samskipti foreldra við unglinga eru afar mikilvæg og hafa rannsóknir sýnt fram á fylgni á milli góðra samskipta foreldra og unglinga og seinkun unglinga á að stunda kynlíf. Markmið rannsóknarinnar var að skoða kynhegðun unglinga í 10. bekk á Íslandi í tengslum við samskipti foreldra. Rannsóknin var unnin úr gögnum frá alþjóðlegri rannsókn, Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC – health behavior in school-aged children). Þátttakendur voru í heildina 3.618 nemendur í 10. bekk í öllum grunnskólum landsins nema einum. Niðurstöður sýna að marktækur munur er á góðum samskiptum hjá foreldrum og unglingum (F(4, 1124) = 11,032, p < 0,001). Góð samskipti foreldra við ungling í 10. bekk seinka fyrstu samförum unglings. Einnig var marktækur munur á góðum tengslum við móður og aldri unglinga við fyrstu samfarir (F(4, 1084) = 4,113, p = 0,003), þeir sem höfðu aldrei stunda kynlíf áttu í betri tengslum við móður.

  • Útdráttur er á ensku

    During adolescence it is our role to find the self, there are fast and major changes in these years both mentally and physically. Relationship with parents during these years change often, where the teenager needs to adapt to the increased responsibilities, new roles and they will become more independent. Parent’s communications with teenagers are extremely important and studies have shown a correlation between good communication between parents and teens and teens to delay of intercourse for the first time. The aim of the study was to examine the sexual behavior of adolescents in 10th grade in Iceland in the context of relations between teenagers and parents. The study was compiled from data from an international study called health behavior in school-aged children (HBSC). Participants were a total of 3,618 students in the 10th grade in all the high schools in Iceland except one. The results show that significant differences are between age groups and good relationship between parents and adolescents (F (4, 1124) = 11.032, p <0.001). When parents have good communications with their teenagers, they are more likely to be older when they have intercourse for the first time. There was also a significant difference between a good relationship with the mother and the age of having intercourse for the first time (F (4, 1084) = 4.113, p = 0.003), those who have never had sex have a better relationship with their mother.

Samþykkt: 
  • 11.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22007


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LOKA 2.pdf659.69 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna