Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22183
Grasalækningar er ein elsta lækningaaðferð mannkyns. Hlutverk grasalækninga og notkun hennar á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum í gegnum aldirnar eða allt frá landnámi. Þekking á notkun og virkni íslensks jurtalífs hefur varðveist í gegnum aldirnar í fornum textum sem eru til komnir vegna bókmenntaarfleifðar Íslendinga.
Í þessari ritgerð verður stiklað á stóru í sambandi við sögu íslenskra lækningajurta og reynt að svara þeim spurningum um hvernig meðhöndlun jurtanna var háttað í fortíð og nútíð. Þrátt fyrir ofsóknir og fordóma í garð þeirra sem stunduðu grasalækningar þá varðveittist mikið af þekkingu grasalækna.
Fólk er í síauknum mæli að leitast í það náttúrlega og er það að verða vinsælla með hverju ári. Í þessu samhengi er hægt að tala um ákveðna „tískubylgju“ sem hefur sprottið upp hvað varðar heilsu og hollara líferni.
Með aukinni eftirspurn, áhuga og framleiðslutækifærum á sviðum grasalækninga hefur samfélagið tækifæri til að skapa nýjan iðnað með nýju og spennandi vöruúrvali. Við þróun slíkra vara, hvort sem þær teljist til matvæla- eða heilsufarlegs iðnaðar þá hefur það möguleika á að blása nýju lífi í íslenskt atvinnulíf og efnahag.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Grös&lækningar_HrefnaLind.pdf | 6,83 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |