Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/22185
Í þessari ritgerð verður farið yfir samspil handverks og hönnunar í nútímasamfélagi, hvernig aukinn áhugi hönnuða og fólks almennt hefur haft þau áhrif að handverk er orðið mun stærri þáttur í hönnun í dag. Fjallað verður um Dieter Rams sem er talinn einn af mest framúrskarandi hönnuðum 20. aldar. Hann er af mörgum talinn vera brautryðjandi í hönnun í heiminum og er þekktur fyrir að hafa einfaldleika að leiðarljósi í öllu sem hann gerir.
Getur Hönnunarstefna Íslands bætt áhuga fólks á hönnun, og bætt um leið starfsumhverfi hönnuða hér á landi. Oft eru mörkin á hönnun og handverki óljós og reyni ég að finna þá línu. Spyr hvað hönnun sé, út frá Hönnunarstefnu Íslands og orðum nokkra valdra hönnuða. Hvernig hönnun hefur aukið neyslu okkar á óþarfa vörum, og hvernig góð markaðssetning hefur fengið okkur til að hugsa alltaf um að fá það nýjasta og besta í dag. Einnig verður skoðað hvernig hönnun og handverk séu að spila stóran þátt í hönnun nú til dag, með ungum hönnuðum sem hafa handverk sitt að aðal ferli sínu í hönnun. Hvers vegna handverksfólk og hönnuðir séu í miklu samstarfi við vísindamenn og verkfræðinga. Hvernig vélar og tækni hafa heft okkur í gengum árin, og svo hvernig þessi tækni á eftir að geta leitt okkur fram á veg í framtíðinni. Tala um hvernig þeir hönnuðir sem um er fjallað í ritgerðinni eigi það sameiginlegt að nota handverk í hönnun sinni og blandi saman handverki og hönnun, og með því geti þeir aukið virðið? í hlut sínum með handverki og hvernig þeir hafa fengið fólk til að skynja hversu órjúfanleg hönnun og handverk eru.
Lykilorð: markaðsstýring, þróun
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Esra+þór+Ritgerð.pdf | 484.63 kB | Locked | Heildartexti |