Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22198
Máltækið „vanþekking er alsæla“ er lífsviðhorf sem einkennir neytendasamfélag samtímans og hefur mikil áhrif á hegðun og neysluvenjur fólks. Við lifum í allsnægtarsamfélagi sem snýst um sölu og neyslu á fatnaði, mat, afþreyingu, fegurð, snyrtivörum og fleiru. Svo virðist sem markaðurinn þekki engin takmörk fyrir því hvað sé falt fyrir fé og virði engin siðferðileg mörk. „Vanþekking er alsæla“ á til dæmis við þegar fólk hefur ekki áhuga á að vita um uppruna varanna sem það neytir. Það er vísvitandi vanþekking (e. willful ignorance). Í þessari ritgerð er leitast við að kanna samspil vísvitandi vanþekkingar og auglýsinga, og hvernig markaðsfræðingar nýta sér slíka vanþekkingu. Áhersla er lögð á auglýsingar sem lúta að dýrum og afurðum tengdum dýrum. Kannað er hvernig auglýsingar dansa á línunni sem markar skilin á milli hins siðlega og hins siðlausa, ala á vanþekkingu og nýta sér þá almennu afstöðu um að vanþekking sé alsæla. Í því samhengi verða nokkrar hugmyndir viðskiptafræðinga og íslenskar siðareglur um auglýsingar teknar til skoðunar. Rannsakað er hvernig meðferð á dýrum til manneldis er háttað á Íslandi sérstaklega og leitað upplýsinga hjá stofnunum og aðilum sem láta sig þennan málaflokk varða. Innihaldslýsingar á matvörum eru jafnframt skoðaðar og kannað hvort og þá hvernig reynt er að blekkja neytendur með villandi upplýsingum.
Lykilorð: siðleysi, dýraafurðir, vanþekking, óforvitni, alsæla
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Vísvitandi+vanþekking.pdf | 493.8 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |