is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/221

Titill: 
  • Mikilvægi myndlistakennslu : læsi á umhverfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um mikilvægi myndlistakennslu innan grunnskólanna. Skoðað er hugtakið list og staða lista í nútímasamfélagi þar sem áhrif mynda fer ört vaxandi. Til að geta notið listrænnar upplifunar og verið læs á umhverfi sitt er mikilvægi myndlæsis útlistað og rýnt í rannsókn sem lýsir því hvernig myndlæsi þróast hjá einstaklingnum og einnig farið yfir aðferðir til að kenna myndlæsi. Í því sambandi er litið til rannsókna sem lúta að eðli og þróun myndlæsis sem mikilvægt er að skoða með tilliti til aukinna áhrifa myndmiðla í nútímasamfélagi. Skoðaðir eru þeir þættir sem myndlistakennsla þarf að taka á með tilliti til Aðalnámskrár, þ.e. hinn skapandi, hinn gagnrýna og hinn menningarlega. Staða myndlistakennslu og vægi hennar innan grunnskólans er að lokum skoðuð og samstarfsverkefni sem verið er að þróa á vegum Myndlistaskólans í Reykjavík og grunnskólanna er kynnt.

Samþykkt: 
  • 19.6.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/221


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd Alfa Ros Petursdottir.pdf234,84 kBLokaðurHeildarverkefniPDF