Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22202
Heyrnarskyn mannsins er fjölþætt listasmíð, það er mikilvægur hluti skilningarvita hans sem gerir honum kleift að skynja umhverfi sitt. Það eru margir líkamlegir þættir sem snerta tónlistarupplifun mannsins en heyrnin er þar þó í aðalhlutverki. Í þessari ritgerð skoða ég áhrif tónlistar á manninn í samhengi við mikla og hraða tækniþróun síðustu áratuga og aukna þekkingu á starfsemi heilans.
Síðustu áratugi hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir á sambandi mannsins við tónlist. Áhrif tónlistar og notkun mannsins á tónlist verða hér skoðuð bæði frá læknisfræðilegu og félagsfræðilegu sjónarhorni. Samfara þessu verður einnig skoðuð öll sú tækniþróun sem átt hefur sér stað í samfélagi okkar og hvernig það hefur haft áhrif á hlustun og notkun tónlistar, tónum og hljóðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Temprun tilfinninga með tónlist.pdf | 621,51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |