Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/22232
Þessi ritgerð er greining á verki Kviss Búmm Bang Djöfulgangi út frá tveimur hugtökum: Annarsvegar ritúali og hinsvegar innlimunarleikhúsi sem er íslensk þýðing á enska hugtakinu immersive theatre.
Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um þessi tvö hugtök út frá kenningum þeirra helstu fræðimanna sem fjallað hafa um þau; í tilviki ritúals þeirra Arnold van Gennep og Victor Turner og í tilviki innlimunarleikhúss Gareth White. Einnig er fjallað um kenningar fræðimannana Roland Barthes og Jacques Rancière um hlutverk og stöðu áhorfandans.
Í seinni hluta ritgerðinnar eru þessar kenningar lagðar til grundvallar fyrir greiningu á Djöfulgangi og er þar sérstaklega einblínt á stöðu áhorfandans innan sýningarinnar. Þar er ætlunin að skoða hvort finna megi einkenni ritúals og innlimunarleikhúss í verkinu og ef svo er á hvaða hátt þau birtast.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Þorvaldur S. Helgason - Ferðalag áhorfandans (BA ritgerð).pdf | 821.41 kB | Open | Heildartexti | View/Open |