en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Iceland University of the Arts > Sviðslistadeild / Department of Performing Arts > Lokaverkefni / Final projects (BA) >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/22237

Title: 
  • Title is in Icelandic Hvers vegna keyrir hann ekki um á bláum Ópel? : Greining á sambandi manns og náttúru í sviðsetningum Ragnars Kjartanssonar.
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í þessari hugleiðingu verður leitast við að svara hvers vegna Ragnar Kjartansson kýs að keyra um á gömlum Cadillac í stað nýrri bílategundar á borð við Ópel Astra. Samanburðurinn er sprottinn af hversdagslegu atviki sem gerðist í miðborg Reykjavíkur og hefur að gera með sviðsetningu listamannsins á sjálfum sér. Greiningin mun hverfast um hugmyndaheim bílaauglýsingar Bílabúðar Benna á Ópel Astra og verða sviðsetningar Ragnars settar í samhengi við hana.
    Í upphafi verður stuttlega farið yfir sögu bílsins og hvernig hann stendur sem tákn fyrir hugmyndafræði tæknivæðingarinnar sem einkennt hefur síðustu aldir. Sú þróun verður síðan sett í samhengi við hugleiðingar Páls Skúlasonar um náttúruna og vistfræðilegar guðfræðikenningar Sallie McFague. Kenningar þeirra um samband manns við náttúrunnar verða þá notaðar til að gera grein fyrir þeirri heimsmynd sem birtist í bílaauglýsingunni.
    Að lokum verða sviðsetningar Ragnars settar í samhengi við þá heimsmynd sem auglýsingin felur í sér. Sýnt verður fram á hvernig sviðsetning listamannsins varpar ljósi á brestina sem upp eru komnir í sambandi manns og náttúru. Rýnt verður í hvernig líkami listamannsins vekur upp minningar um hið liðna og skapar þannig samtal á milli fortíðar og framtíðar. Staða karlmannsins í verkum Ragnar verður skoðuð sem og tengsl tónlistarinnar við kvenmynd elífðarinnar. Að lokum verður fjallað um hvernig Ragnar álítur listsköpunina vera guðdóm sem hann lofsyngur fram í hið óendanlega.

Accepted: 
  • Jun 24, 2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22237


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
GígjaHolmgeirs_BA.pdf225,38 kBOpenHeildartextiPDFView/Open