Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/22246
Hagkvæmniathugun á þurrkun í leikskólum með hitaveitu í stað rafmagns
Markmið verkefnisins var að gera samanburð á rekstrar- og stofnkostnaði við rafmagns- og hitaveituþurrkskápa á
leikskólum í Kópavogi.
Tengdir voru þrír rafmagnsmælar við rafmagnsþurrkskáp til að fá betri mynd af notkunarmynstrinu.
Finna eða hanna þurrkskáp sem notar hitaveitu. Gera hagkvæmniathugun til að sjá hvort rekstrarsparnaðurinn standi undir smíði á hitaveituþurrkskáp og finna uppgreiðslutíma á fjárfestingu.
Einning var gerð tölfræðileg athugun á hvernig þurkun er háttað í leikskólum, ásamt meðaltal fjölda krakka/skáp.
Helstu niðurstöður eru að þó hægt sé að spara allt frá 60-74% í rekstrarkostnaði með hitaveituþurrkskápum þá er það samt
lítill peningur í krónutölum og miðað við 5 þurrkannir í viku að meðaltali yfir árið gæti sparast 3.6 til 4 þús.kr/ári. Þar af leiðandi reyndist erfitt að finna uppborgunartíma framkvæmdar, við 5% ávöxtunarkröfu, á innan við 50 árum.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Adal skyrsla.pdf | 23,43 MB | Open | Complete Text | View/Open |