en English is Íslenska

Thesis (Master's)

Reykjavík University > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/22260

Title: 
  • Title is in Icelandic Opinber umræða í athugasemdakerfum fjölmiðla og ábyrgð á ummælum
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í ritgerð þessari verður fjallað um opinbera umræðu í athugasemdakerfum fjölmiðla og ábyrgð á þeim ummælum sem þar eru látin falla. Einnig verður velt upp hugsanlegri ábyrgð fjölmiðils á þeim ummælum sem skrifuð eru í athugasemdakerfi þeirra. Með tilkomu athugasemdakerfa hafa skapast ný lagaleg álitaefni og lagaleg staða þeirra er ekki allskostar skýr. Með athugasemdakerfum er almenningi boðið að taka virkari þátt í opinberri umræðu í þjóðfélaginu og hefur koma þeirra gefið rödd lesenda meira vægi. Athugasemdakerfi fjölmiðla hafa allt frá upphafi sætt mikilli gagnrýni og sú opinbera umræða sem þar fer fram á það til að vera nokkuð óvægin.
    Í upphafi ritgerðarinnar verður fjallað um þær reglur sem til staðar eru varðandi ábyrgð á efni fjölmiðla samkvæmt lögum um fjölmiðla nr. 38/2011. Í þriðja kafla ritgerðarinnar verður fjallað með almennum hætti um athugasemdakerfi fjölmiðla og þau sérstöku álitaefni sem upp geta komið. Í fjórða kafla verður fjallað um þá umræðu sem fer fram í athugasemdakerfum fjölmiðla á Íslandi. Í fimmta kafla verður greint frá gildandi reglum um ábyrgð milligönguaðila, en samkvæmt lögum nr. 30/2002 eiga athugasemdakerfi fjölmiðla undir gildissvið laganna. Í sjötta kafla verður fjallað um ábyrgð á ummælum í athugasemdakerfum og hvort til greina komi að gera fjölmiðil ábyrgan á þeim ummælum sem þar eru látin falla. Í sjöunda kafla verður fjallað um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem fjölmiðill var gerður ábyrgur fyrir nafnlausum ummælum í athugasemdakerfi sínu. Loks verður í áttunda kafla fjallað stuttlega um erlenda löggjöf um viðfangsefnið. Í níunda kafla verður stuttlega fjallað um þær helstu leiðir sem fjölmiðlar erlendis hafa farið í viðleitni sinni til að hafa stjórn á umræðum í athugasemdakerfum sínum. Loks verður í tíunda kafla gerð grein fyrir helstu niðurstöðum.

Accepted: 
  • Jun 25, 2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22260


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Ritgerð lokaskjal.pdf740.9 kBLocked Until...2035/05/01Complete TextPDF