Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22296
Í ritgerðinni Block chain tækni: Útgáfa stafrænna gjaldmiðla, löggerninga og annarra réttinda á dreifðri og samnýttri færsluskrá, er leitað svara við spurningum sem snúa að því hvert lagaumhverfið sé í tengslum við notkun bitcoin og block chain tækni í Evrópu og á Íslandi. Undirstöðuatriði er varða block chain tæknina eru skýrð. Þá er fjallað um frumkvæði stjórnvalda að því að skýra lagaumhverfið í Bandaríkjunum, Evrópu og Bretlandi. Tillögur að laga og reglusetningu í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna eru skoðaðar, sem og tillögur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og Breska fjármálaráðuneytisins. Skoðað er hvernig stafrænir gjaldmiðlar eins og bitcoin falla að íslenskum lögum, varðandi kaup og sölu þeirra, notkun þeirra í viðskiptum, skattalega meðferð og álitaefni í tengslum við fjármagnshöftin. Þá er fjallað um hvernig fer með útgáfu ýmissa verðmæta á block chain tækni, og skoðað hvernig rafræn skilríki gætu nýst í því tilliti. Skoðuð eru áform aðila í Bandaríkjunum um að nýta block chain tækni til þess að gefa út hlutabréf í skráðum og óskráðum félögum. Að lokum eru gerðar tillögur að því hvernig skýra megi lagaumhverfið hér á landi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að lagaumhverfið hvað stafræna gjaldmiðla og block chain tækni varðar, er mjög óskýrt og mikið ósamræmi ríkir m.a. meðal ríkja Evrópusambandsins. Umhverfið á Íslandi er mjög aðþrengt, sökum fjármagnshafta og líklegrar virðisaukaskattskyldu á viðskipti með bitcoin.
In this paper, called Block Chain Technology: Issuance of digital currencies, legal instruments and other rights on a distributed and shared ledger, we examine questions regarding the legal environment concerning the usage of bitcoin and block chain technologies in Europe and in Iceland. The basic functionality of block chain technology is explained. Initiatives by governments intended to clarify the legal environment in the United States, Europe and Great Britain are examined. Proposals for legal and regulatory measures in several U.S. states are examined, as well as proposals of the European Banking Authority and HM Treasury. We examine how digital currencies like bitcoin are regulated by Icelandic law, in regards to the buying and selling of them, usage in trade, issues regarding taxation and in relation to the capital controls. We examine how the issuance of valuables on a block chain can occur, and we examine how electronic identification schemes can play a role. We examine the intentions of parties in the U.S. to issue shares in private and public companies using block chain technology. Finally we make proposals as to how to clarify the legal regime in Iceland. We conclude that the legal regime regarding digital currencies and block chain technology, is extremely unclear and contradictory, as for example in the EU countries. The regime in Iceland is hostile, in light of the capital controls and likely VAT requirements on bitcoin trade.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð_final.pdf | 607.66 kB | Lokaður til...20.11.2122 | Heildartexti |