en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/2240

Title: 
  • Title is in Icelandic Fjárreiður stjórnmálaflokka: Spilling, hagsmunir og lög
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Lög um fjármál stjórnmálaflokka voru sett á Alþingi í lok árs 2006. Aðdragandi
    lagasetningarinnar er skoðaður, m.a. spurt hvers vegna voru lögin sett á þessum tíma?
    Tekin voru viðtöl við fjóra nefndarmeðlimi nefndar um fjármál stjórnmáaflokka, um
    nefndarstörfin ásamt því að leitað er svara hvernig og af hverju þverpólitísk samstaða
    náðist um málefnið. Ársreikningar flokkanna, rekstarreikningur, eru bornir saman við
    árin áður en lagasetningin tók gildi og svo árið sem lagasetningin varð gild. Ekki
    fengust upplýsingar frá tveimur þingflokkum, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki.
    Borinn er saman kostnaður við Alþingiskosningar 2003 og 2007 en kostnaður, m.a.
    auglýsingakostnaður, hafði aukist gríðarlega síðustu árin. Tilgátan er sú að ákvörðun
    um það að setja lög um fjármál stjórnmálaflokka hafi verið vegna utanaðkomandi
    þrýstings, almennrar umræðu í þjóðfélaginu og grun um spillingu. Niðurstaðan er sú
    að þrátt fyrir misjafnar skoðanir milli flokkanna í byrjun þá var almenn sátt í lokin um
    að setja þyrfti reglur um fjárreiður stjórnmálaflokka með endurskoðunarákvæði. Hægt
    er að styðja við tilgátuna.
    Lykilorð: Fjármál stjórnmálaflokka, lög um fjármál stjórnmálaflokka, nefnd um
    fjármál stjórnmálaflokka, ársreikningar stjórnmálaflokka, spilling, hagsmunir, og
    lýðræði.

Accepted: 
  • Apr 21, 2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2240


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
NannaHelgaValfells_fixed.pdf422.85 kBOpenHeildartextiPDFView/Open