Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22421
Fasteignir eru á meðal verðmætustu eignarréttinda á Íslandi. Skipulagsáætlanir og breytingar á þeim geta haft umtalsverð áhrif á verðmæti þessara eignarréttinda og hefur það því í senn hagnýta og fræðilega þýðingu að greina þær réttarreglur sem gilda um breytingar á skipulagsáætlunum. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þær stjórnskipulegu og lagalegu heimildir sem skipulagsyfirvöld hafa til að takmarka eignarrétt með breytingu á deiliskipulagsáætlunum.
Í öðrum kafla ritgerðarinnar er gerð grein fyrir tilteknum grundvallaratriðum er lúta að eignarrétti, svo sem með hvaða hætti skilgreina beri eignarhugtakið og hver sé þýðing stjórnskipulegrar eignarréttarverndar á sviði skipulagsmála. Í þriðja kafla er fjallað með almennum hætti um skipulagsáætlanir og réttaráhrif þeirra, með sérstakri áherslu á deiliskipulag. Að því loknu er í fjórða kafla fjallað um það efni sem myndar kjarna ritgerðarinnar, þ.e. breytingar á deiliskipulagi og valdheimildir sveitarstjórnar til slíkra breytinga í ljósi eignarréttarins. Í fimmta kafla eru síðan niðurstöður dregnar saman.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_ritgerd.pdf | 497.12 kB | Lokaður til...01.09.2050 | Heildartexti | ||
scan_r01asva27082020.pdf | 374.76 kB | Lokaður | Yfirlýsing |