Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22481
Skoðað er það umhverfi sem notendur rafbíla búa við á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til þeirrar áhættu á að verða rafmagnslausir og geta ekki lokið ökuferð sinni nema með utanaðkomandi aðstoð. Verkefnið snýst um að skoða hvort metanólefnarafall sé fýsilegur kostur til að leysa þetta vandmál og gera notendur sjálfbjarga í neyð eins og rafmagnsleysi eða koma í veg fyrir slíkt. Tekið er tillit til ökudrægni, orkunotkunar, breytilegt aksturslag, fyrirferð og þyngd búnaðar og hvar slík tækni er stödd í þróunarferlinu. Síðast er reynt að skoða verð á slíkum búnaði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Rafiðnfræði Ásgeir Örn v12.pdf | 2.03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |