Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22511
Í ritgerðinni er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað og að hvaða leyti hugmyndafræði frjáls og opins hugbúnaðar á heima í skólakerfinu með hliðsjón af Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011. Skoðuð er núverandi staða frjáls og opins hugbúnaðar í skólakerfinu og kannað hvort stefna stjórnvalda í málefnum frjáls og opins hugbúnaðar hafi skilað sér inn í Aðalnámskrá Grunnskóla og þaðan inn í skóla landsins. Rætt var við fagaðila, bæði fyrrum starfsmenn Menntamálaráðuneytis og núverandi starfsmenn íslenskra skóla, til þess að fá frekari skilning á stöðu frjáls og opins hugbúnaðar hjá menntastofnunum landsins. Niðurstöður benda til þess að stefna stjórnvalda hafi ekki skilað sér inn í Aðalnámskrá grunnskóla og að litlu leyti inn í skóla landsins þrátt fyrir að margt í hugmyndafræði frjáls og opins hugbúnaðar samræmist markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Frjals_opinn_hugbunadur_skolastarf.pdf | 1.62 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |