Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/22518
Verkefnið er lokaverkefni mitt til B.Ed -prófs í grunnskólakennarafræðum við menntavísindasvið Háskóla Íslands og skiptist það í greinargerð og verkefnasafn. Verkefnasafnið kemur í framhaldi af greinargerðinni.
Í greinagerðinni er fjallað um kennslufræðileg atriði er tengjast þróun og gerð nytjahluta í hönnun og smíði. Einnig er fjallað er um menntafrömuði á síðustu öldum er fjölluðu um mikilvægi þess að kenna handverk sem hluta af alþýðumenntun. Í greinargerðinni er Aðalnámskrá grunnskóla jafnframt skoðuð og dregnar fram áherslur í hæfniviðmiðum fyrir námsgreinina hönnun og smíði er tengjast nytjahönnun. Reynt er að svara því af hverju hönnun ætti að vera áhersluþáttur í skólastarfi.
Í lok ritgerðarinnar eru sett fram verkefni er lúta að nytjahönnun. Gerð er grein fyrir smíði þeirra og notkun. Fjallað er um útlits- og formhönnun verkefnanna og yfirborðsmeðferð, um umgengni og öryggi og hvernig kennari og nemendur geta metið verkefnin. Hverju verkefni fylgir ljósmynd af fullunnu dæmi um útfærslu hugmyndarinnar og verkefnalýsing sem hægt er að nýta í kennslu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Heiða Lokaritgerð pdf.pdf | 1.98 MB | Open | Heildartexti | View/Open |