Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22529
Eitt aðalmarkmiðið með verkefninu var að skrifa barnasögu með hliðsjón af fræðilegu efni og komast að því hvað felst í því ferli. Sagan er ætluð 7-10 ára börnum og umfjöllunarefnið ákveðið með tilliti til þess aldurshóps. Í framhaldinu var aflað heimilda um bókmenntagreiningu og myndskreytingar í bókum og sagan skrifuð út frá því fræðilega efni. Í greinargerðinni er fyrst fjallað um bókmenntagreiningu þar sem er gerð grein fyrir þáttum skáldsögunnar og gæði hennar. Því næst er fjallað um myndefni í barnabókum og einkenni þeirra eru útskýrð. Að lokum er barnasagan borin saman við fræðilega efnið.
Við lestur fræðilega efnisins og skrifin sjálf kom í ljós að talsvert flókið er að skrifa barnabók og þar undir eru margir þættir sem þarf að taka tillit til. Skapandi skrif eru snar þáttur í starfi íslenskukennara og þessi skrif voru annars vegar þáttur í undirbúningi fyrir það starf og á hinn bóginn hugsanlega til gagns fyrir aðra kennara í svipaðri stöðu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hvernig skrifa skal sögu.pdf | 445.33 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Stráklingurinn í skóginum.pdf | 1.24 MB | Lokaður til...01.05.2025 | Fylgiskjöl |