Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2254
Fjallað er annars vegar um eðli upplýsinga, upplýsingahegðun og upplýsingasamfélagið en hins vegar er greint frá rannsókn sem gerð var á þörfum nemenda Háskólans á Bifröst varðandi upplýsingar á vefsetri skólans. Markmið þeirrar rannsóknar var að komast að því hvaða upplýsinga nemendurnir leituðu helst, hvernig þeir leituðu þeirra og hvernig þeim gekk að finna þær. Rannsóknin var gerð á fyrri hluta ársins 2008 og voru þátttakendur í henni átta nemendur úr háskóladeildum á Bifröst, grunn- og framhaldsnámi. Beitt var aðferðum eigindlegra rannsókna í leit að þemum sem varpa mættu ljósi á upplýsingaþarfir nemenda. Niðurstöður gagnagreiningar voru skýrðar í ljósi fræðilegrar umræðu um upplýsingar og upplýsingahegðun. Upplýsingar um námið og skólastarfið eru það sem þyngst vegur í huga þátttakenda varðandi efni á vefsetrinu en upplýsingar tengdar nánasta umhverfi og daglegu lífi í háskólaþorpinu hafa meira vægi en í fljótu bragði kann að virðast. Nokkur munur er merkjanlegur á afstöðu þátttakenda til efnis og skipulags á vefsetrinu, munur sem skýra má meðal annars í ljósi persónulegra aðstæðna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MLIS_AnnaG_fixed.pdf | 1.41 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |