Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/22651
Tilgangur þessa verkefnis er að kanna og bæta menntun körfuknattleiks- þjálfara á Íslandi. Viðhorf og staða menntunar körfuknattleiksþjálfara er skoðuð með spurningakönnun og viðtölum. Í könnuninni og viðtölunum kom fram að viðhorf til menntunar er almennt nokkuð gott en menntun þjálfara er töluvert ábátavant. Menntakerfi frá ÍSÍ, KSÍ, FIBA Europe, KKÍ og Kanada eru skoðuð. Í framhaldinu er menntakerfi fyrir íslenska körfuknattleiksþjálfara sett upp samhliða menntakerfi ÍSÍ. Menntakerfið er í þremur stigum og skiptist hvert stig í þrjú undirstig eins og þekkist í menntakerfi ÍSÍ. Þegar búið var að setja upp menntakerfið, var uppsetning og innihald menntakerfisins rætt í rýnihópum. Eftir að menntakerfið hafði verið rætt í rýnihóp var menntakerfið sent á nokkra álitsgjafa sem gáfu sitt persónulega álita á uppsetningu og innihaldi menntakerfisins. Niðurstaðan er sú að menntakerfi fyrir körfuknattleiksþjálfara er tilbúið til notkunar. Það þarf þó að hafa í huga að menntakerfið þarf að vera í stöðugri þróun til að aðlagast breytum tímum og aðstæðum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
MSc_Lokaverkefni_Agust_Sigurdur_Bjorgvinsson.pdf | 1.49 MB | Open | Complete Text | View/Open |