is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22696

Titill: 
  • Prestur í mynd. Prestar í átta norrænum kvikmyndum frá 2003-2013
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um átta norrænar kvikmyndir frá árunum 2003-2013 sem eiga það sameiginlegt að ein af lykilpersónum myndarinnar er prestur. Myndirnar eru greindar út frá aðferðafræði Deus ex cinema og módeli sem er byggt á bókinni The Pastor eftir Gordon W. Lathrop. Skoðað er hvaða tákn eru notuð til að sýna að persóna í kvikmynd sé prestur, hvaða titlar eru notaðir um prestinn, hvort fjallað er um köllun hans, hver meginverkefnin eru, hvort presturinn er tengdur söfnuði, hvort hann þjónar í helgihaldi eða athöfnum, hvort presturinn biðst fyrir, prédikar, hvernig Biblían er notuð og hvernig presturinn lifir sem kristin manneskja. Rannsóknin leiðir meðal annars í ljós að aðferðafræði Deus ex cinema er gagnleg í vinnu við frásagnamyndir þegar hún er spyrt saman við módel eins og það sem notað er í ritgerðinni. Þá leiðir rannsóknin í ljós að sumar myndanna eiga ákveðin kvikmyndafræðileg stílbrögð sameiginleg, til dæmis notkun á ofanskotum og veðri til að tjá nærveru Guðs. Fengist er við margvísleg tilvistar- og siðferðisstef í þessum kvikmyndum og myndin af prestunum er fjölbreytt og á dýptina. Kvikmyndirnar birta þá sýn á lútherska presta að þjónusta í helgihaldi, athöfnum og sálgæsla séu meginverkefni þeirra. Í þeim er dregin upp mynd af prestum sem eru manneskjur af holdi og blóði. Áhorfandinn getur því nálgast prestana og jafnvel fundið samsvörun milli sín og þeirra.

Samþykkt: 
  • 7.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22696


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
arni-svanur-danielsson-prestur-i-mynd-skemman.pdf9.33 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna