Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/226
Meginefni þessarar ritgerðar er rannsókn á stöðu myndlistar í tveimur skólum með ólíkar kennslustefnur. Í öðrum skólanum er fagmiðuð myndlistarkennsla en í hinum er myndlistarkennslan einstaklingsmiðuð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort myndlistarkennslan héldi stöðu sinni þegar einstaklingsmiðuð kennsla tekur við af fagmiðaðri myndlistarkennslu í grunnskólunum. Tekið var mið af þáttum eins og fjármagni til greinarinnar, tímamagni og húsnæði við breytta kennslustefnu í skólastarfi. Rannsóknin er tilviksrannsókn (e.case study) og var gerð í febrúar og mars 2007. Gagna var aflað með opnum einstaklingsviðtölum við tvo myndlistarkennara sinn í hvorum skóla og kenndu þeir báðir myndlist í fimmta bekk. Kennararnir höfðu svipaðan bakgrunn, m.t.t. menntunar og starfsreynslu. Einnig voru gerðar vettvangsathuganir í báðum bekkjunum. Gögnin voru lykluð í þemu og flokka sem lýsa markmiðunum. Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru þær að myndlist í skóla með einstaklingsmiðaða kennslu hefur sterkari stöðu innan skólans en í þeim með fagmiðaða hvað varðar fjármagn, tímamagn og húsnæði. Nemendum í einstaklingsmiðaðri kennslu bjóðast einnig fleiri tækifæri til að vinna að myndlist utan hefðbundinna myndlistartíma. Vegna aukinnar kröfu um að börn geti brugðist rétt við margs konar myndrænni framsetningu á upplýsingum þurfa skólayfirvöld að halda vöku sinni og búa nemendur sem best undir framtíðina með því að gera myndlistinni hátt undir höfði í starfi grunnskólanna.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 1.62 MB | Open | Heildarskjal | View/Open |