Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22733
Í ritgerðinni er fjallað um listasýninguna Frenjur og fórnarlömb sem sett var upp í Listasafni ASÍ þann 14. maí – 30. júní 2015, í tilefni af 100 ára kosningarrétti kvenna á Íslandi. Þema sýningarinnar var að konur fjölluðu um konur og var hún hluti af Listahátíð í Reykjavík ásamt því að vera framlag Listasafns ASÍ til að vekja athygli á þátttöku kvenna í listasögunni. Í ritgerðinni eru nokkur verk sýningarinnar tekin
fyrir og greind með kynjafræðilegri greiningu til þess að varpa ljósi á sýninguna í heild sinni.
Við opnun sýningarinnar var gefin út sýningarskrá sem ritstýrð var af höfundi þessarar ritgerðar. Í seinni hluta ritgerðarinnar er fjallað um útgáfuferlið, ritstjórnarstefnuna og hugmyndavinnuna sem átti sér stað áður en sýningarskráin var gefin út. Skrána í heild sinni má finna í viðauka aftast í ritgerðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni - Ragnheiður - lok.pdf | 9.23 MB | Lokaður til...14.09.2135 | Heildartexti | ||
skráin- fyrir mastersritgerd.pdf | 5.43 MB | Lokaður til...14.09.2135 | Viðauki |
Athugsemd: Ritgerð lokuð vegna höfundarréttar á myndefni.