is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22805

Titill: 
  • Ræðum saman og lærum : stærðfræðikennsla ungra barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún er ætluð sem leiðarvísir við stærðfræðikennslu ungra barna í grunnskólum og á að gefa innsýn inn í það hvað felst í stærðfræðikennslu yngsta stigs. Í þessari ritgerð fjalla ég um stærðfræði líkt og hún birtist í aðalnámskrá grunnskóla og skoða inntak stærðfræðinámsins fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskólans. Þá mun ég skoða hæfniviðmið aðalnámskrár, hvað felst í þeim og koma með kennsluhugmyndir sem kennaranemi eða kennari í starfi getur nýtt sér til þess að styðja nemendur við að vinna að því að ná hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Ég mun ræða um mikilvægi umræðna í stærðfræðinámi og kynna kennsluaðferðir sem henta því viðmóti. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á mikilvægi fjölbreyttra kennsluhátta svo fleiri geti lært stærðfræði til skilnings og þannig búið að henni um alla tíð. Efni ritgerðarinnar er sett upp á heimasíðunni www.reiknadumedmer.weebly.com til þess að gera efnið aðgengilegra fyrir alla þá sem vilja nýta sér það.

Samþykkt: 
  • 10.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22805


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni-b.ed-AngeliaFjola-afv4.pdf1,03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna