Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2282
Verkefni þetta fjallar um uppkomin börn alkóhólista sem hafa farið í gegnum Alanon-sporin. Alkóhólismi hrjáir margar fjölskyldur og snertir það alla fjölskyldumeðlimi. Börn alkóhólista eiga það til að tileinka sér ákveðin hlutverk til þess að lifa af í þeim aðstæðum sem þau eru í og þar með geta þau þróað sjúkdóm sem heitir meðvirkni. Rannsóknin fór þannig fram að það voru tekin 6 viðtöl við konur sem hafa farið í gegnum Alanon-sporin. Rannsóknarspurningarnar voru
1. Hvernig hefur líf uppkominna barna alkóhólista verið?
2. Hefur Alanon-kerfið hjálpað þeim til að líða betur?
Leitast var eftir því að skyggnast inn í líf þeirra og sjá hvernig það var þegar þær voru börn og hvernig það var á fullorðinsárunum og svo hvernig það var eftir Alanon sporavinnuna. Helstu niðurstöður voru að mikil munur var á lífi þeirra fyrir Alanon og eftir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ritgerdin_fixed.pdf | 425.95 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |