Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/22826
Í ritsmíð þessari verður fjallað um lausnamiðaða nálgun sem aðferð í stuðningi við hin ýmsu úrlaunsarefni sem fatlað fólk mætir í daglegu lífi. Lausnamiðuð nálgun sem á ensku kallast solutioun-focused approach hefur verið nýtt á meðal ólíkra fagstétta en lítill gaumur verið gefinn innan fagstéttar þroskaþjálfa. Lausnamiðuð nálgun á margt sameiginlegt með öðrum aðferðum sem þroskaþjálfar nýta nú þegar og nýtist með breiðum og ólíkum hópi einstaklinga. Aðferðin inniheldur ákveðið ferli sem þó getur verið breytilegt með ólíkum einstaklingum. Í aðferðinni er lagt upp með lausnamiðaða hugsun þar sem áherslan er á því sem hægt er að breyta í stað þess að kryfja vandann. Aðferðin hentar sérlega vel til valdeflingar en valdefling og sjálfsákvörðunarréttur eru einmitt meðal lykilþátta í störfum þroskaþjálfa og teljum við því aðferðina henta bæði starfsaðferðum og vettvangi þroskaþjálfa. Stuðst er meðal annars við heimildir frá frumkvöðlum aðferðarinnar sem og tengdum rannsóknum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
lausnamidud_nalgun_i_storfum_throskathjalfa.pdf | 553.73 kB | Open | Heildartexti | View/Open |