Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/22864
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í faggreinakennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefnið skiptist í fræðilega greinargerð og verkefnasafn. Í greinargerðinni er í stuttu máli fjallað um uppruna smíðakennslunnar. Einnig er talað almennt um útlits- og formhönnun, sagt verður frá hönnunarferlinu og þeim yfirborðsmeðferðum sem notaðar eru við kennslu í greininni. Teknar verða saman helstu áherslur úr Aðalnámskrá grunnskólanna í hönnun og smíði. Farið verður yfir algengustu kennsluaðferðirnar, undirbúning kennslu, efnisöflun, umgengni og öryggi í faginu. Einnig verður fjallað í stuttu máli um þær námsmatsaðferðir sem notaðar eru í verkefnasafninu.
Í verkefnasafninu eru hugmyndir að verkefnum fyrir nemendur á mið- og unglingastigi. Þar eru einnig útskýringar á því hvernig nýta megi verkefnasafnið við kennslu í hönnun og smíði.