Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22934
Markmiðið með þessari ritgerð er að kanna hagkvæmni þess að flytja vörur inn í safngámum frá Aarhus. Flutningsgjöld eru hagkvæmari ef vörur eru fluttar inn í heilum gámum frekar en á lausum brettum og ein leið til að nýta sér þetta án þessa að panta of mikið í einu er að safna saman pöntunum frá mörgum aðilum í einn gám. Með því að fara þessa leið geta fyrirtæki lækkað kostnað töluvert með minni flutningsgjöldum.
Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er fjallað fræðilega um helstu hugtök, kenningar og aðferðir sem tengjast vörustjórnun. Síðan er fjallað um fyrirtækið BYKO og greiningu á kostnaði við innflutning frá Aarhus. Að lokum er greint frá niðurstöðum ritgerðarinnar.
Í ljós kom að mikil tækifæri til hagræðingar felast í því að flytja vörur inn í safngámum frá Aarhus.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
JSM_BS_lokaskil.pdf | 1,03 MB | Lokaður til...18.09.2046 | Heildartexti |