Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22959
Í þeim heimi sem við búum í eru breytingar óumflýjanlegar, stjórnendur þurfa að vera vel á verði ef fyrirtæki þeirra eiga ekki að lenda undir í þeirri hörðu samkeppni sem einkennir markaðinn. Að mörgu þarf að huga og skiptir mannlegi þátturinn þar miklu máli til þess að breytingar gangi vel fyrir sig. Sjávarútvegsfyrirtæki sem var með starfstöðvar sínar á fjórum stöðum víðs vegar á landinu þurfti að fara í þær róttæku breytingar að loka þremur af starfstöðvum sínum og flytja alla starfsemina á einn stað.
Markmið rannsóknarinnar er að skoða upplifun starfsmanna og stjórnenda á þeirri róttæku breytingu sem fyrirtækið var tilneytt til að fara í. Tekin voru tíu viðtöl við starfsmenn þess, en sjö þeirra fluttu búferlum með fyrirtækinu. Einnig var tekið viðtal við þrjá stjórnendur sem staðsettir voru í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Notast var við fyrirbærafræðilega rannsókn og gögnum safnað með djúpviðtölum.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að upplifun starfsmanna á breytingunum hafi á heildina litið verið góð. Helsta óánægjan snerist að sorginni og áfallinu að starfsemin þyrfti frá að hverfa frá fyrrgreindum stöðum. Fyrirtækið hafði unnið sér stóran sess í bæjarlífinu og erfitt fyrir marga, bæði starfsmenn og bæjarbúa, að sætta sig við breytinguna. Viðmælendur voru sammála um að stjórnendur hefðu staðið vel að allri upplýsingagjöf til starfsmanna sinna og gáfu ekki neitt út nema geta staðið við þau orð. Haldið var vel utan um starfsfólkið meðan á breytingunum stóð og þær vel kynntar. Starfsfólk sá fram á aukin tækifæri á nýjum stað vegna staðsetningarinnar sem var nær höfuðborginni og alþjóðaflugvelli.
Changes are unavoidable in the world that we live in, managers need to be on guard to make sure their firm stays afloat in the hard competition that characterizes the market. There are many things to consider for a well-executed change and one of the biggest challenge is the human factor. A fishing company with its fish processing spread out in four towns in Iceland needed to take a radical change and close three of its processing stations and merge them to one place.
The goal with this research is to look into the experience of the employees and their managers on when the company was forced into these radical changes. The interviewees were ten, seven employees that moved with the company and three managers that were stationed in the company´s headquarters. A phenomenological research method and in-depth interviews were used to answer those questions.
The result showed that the employees and managers experience in the change was overall good. The most discontent that the employees experienced was the grief and the shock about having the company relocating. It had been such a big part of the town life and hard for many, both employees and locals to except the change. The interviewees all agreed that the managers did a good job when it came to inform the employees about the change and didn´t give out any promises they could not keep. Well was taken care of the employees while in transition and every step was well introduced to them. The employees saw increased opportunities at the new place because of its location being near the capital and the international airport.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Helga Jónasdóttir.pdf | 864,78 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |