Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/2297
Malaví og Suður-Afríka lutu bæði stjórn Evrópuríkja sem nýlendur um langt skeið. Leið landanna að sjálfstæði var ólík. Malaví öðlaðist sjálfstæði með fremur friðsamlegum hætti en lýðræðislegu skipulagi í Suður-Afríku var ekki komið á átakalaust. Konur léku þátt í sjálfstæðisbaráttu beggja ríkja, þó í mismiklum mæli. Suður-afrískar konur héldu úti skipulegra starfi en þær malavísku og náðu töluverðum árangri fyrir hönd kvenna í lýðræðisbaráttunni. Hlutfall kvenna á þingi Suður-Afríku er meira en helmingi hærra en hlutfall kvenna í Malaví. Þar sem eitt skilyrðanna fyrir virku lýðræðisríki er það að þátttaka allra þegnanna sé jöfn er þetta til marks um að Suður-Afríka sé komin lengra í lýðræðisþróuninni en Malaví. Ólíkir þættir stjórna því hvers vegna löndin eru í þeim sporum sem þau finna sig í. Með tilliti til stjórnmálaþátttöku kvenna skapaði ófriður í innanríkismálum Suður-Afríku í aðdraganda lýðræðis tækifæri fyrir konur til að beita sér í stjórnmálum. Malavískar konur bjuggu ekki við sams konar tækifæri. Styður þetta tilgátuna sem sett er fram hér að í Suður-Afríku sé lýðræði virkara og ástæður þess megi rekja til þeirra tækifæra sem sköpuðust fyrir konur í stjórnmálalegu umróti í Suður-Afríku.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA_fixed.pdf | 341.08 kB | Open | Heildartexti | View/Open |