Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/22989
Í þessari ritgerð er fjallað um þátt og möguleika samræðunnar í kennslu fjölbreyttra
faggreina. Markmið ritgerðarinnar er að kanna forsendur samræðunnar sem
kennsluaðferðar og leggja fram rök fyrir beitingu hennar í kennslu, ásamt því að varpa
fram hugmynd um hvernig innleiða mætti samræðuna við kennslu fjölbreyttra faggreina.
Til þess er stuðst við samræðulíkan Urs Rufs og Peter Gallins.
Skoðuð voru ákvæði Aðalnámskrár grunnskóla (2011–2013) í þessu samhengi og þar
leitað að rökum fyrir tilvist samræðunnar í kennslu. Einnig var unnið úr safni heimilda til
þess að leita leiða og möguleika við að innleiða eða efla samræðuna við kennslu
fjölbreyttra faggreina á áhrifaríkan máta.
Því var leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað styður það að
samræðan verði álitin grundvallarkennsluaðferð í grunnskólum á Íslandi?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
18 feb Skemma- vistun.pdf | 778,88 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |