Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/23092
Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um nýtingu ferskra viðarafurða í kennslu. Kennarahandbókinni Hríslu er ætlað að auka við kennsluefni og upplýsingar fyrir kennara og nemendur þeirra á íslensku um ferskan við. Tilgang og notkunarmöguleika hans fyrir smíða og útikennara. Gengið var út frá spurningunni "Hvernig getum við aukið nýtingu fersks viðar í kennslu?" Álit og reynsla sérfræðinga í ferskum viði var skrásett auk þess sem kannað var hvar sérstaða og einkenni íslensks viðar liggur.
Aukin áhersla hefur verið lögð á sjálfbærni, útikennslu og vettvangsnám í skólastarfi. Tenging við nærsamfélagið, nýting innlends viðar og tenging smíðakennslunnar utan skólastofunnar kemur til móts við þessar áherslur. Aðalnámskrá grunnskóla hefur með nýjum áherslum á grunnþætti menntunnar lagt grunn að aukinni umhverfisvitund og breyttri framtíðarsýn. Með þessum áherslum geta kennarar og nemendur haft víðtæk áhrif á innleiðingu sjálfbærni í skólastarfi ásamt því að auka nýtingu íslenskra auðlinda. Nýting efniviðar úr íslenskum skógum, útivistarsvæðum og heimilisgörðum er mikilvægur hlekkur í þessari keðju. Tími skógarins sem útivistar- nytja- og kennslurýmis er orðin að veruleika.
Verkefnið er tvískipt. Annars vegar kennarahandbók sem er ætlað að koma til móts við vöntun hjá kennurum og jafnvel handverksfólki á upplýsingum um íslenskar trjátegundir og nýtingu þeirra. Innlendum trjátegundum, einkennum þeirra og notkunarmöguleikum eru gerð skil. Sérstaklega er fjallað um þau verkfæri sem notuð eru í ferskviðarvinnu. Hins vegar er greinargerð sem fjallar um tilurð, markmið og fræðilegan grunn kennarahandbókarinnar auk þess sem sjónum er beint að tengslum við Aðalnámskrá grunnskóla.
Lykilorð: Smíði, ferskar viðarnytjar, sjálfbærni, útikennsla, vettvangsnám, samþætting, umhverfismennt.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hrisla_greinargerd_lokaskil.pdf | 1.11 MB | Open | Greinargerð | View/Open | |
Hrisla_kennarahandbok_lokaskil.pdf | 7.96 MB | Open | Kennarahandbók | View/Open |
Note:
Hríslu : kennarahandbók og meðfylgjandi greinargerð má ekki afrita með neinum hætti nema með leyfi höfundar.