en English is Íslenska

Thesis (Master's)

Iceland University of the Arts > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed, M.Mus.Ed) >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/23097

Title: 
  • Title is in Icelandic Mér liggur á hjarta : innstillingaræfingin "tékk-inn" - brú á milli hversdagsleikans og rýmis til sköpunar
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Tékk-inn er innstillingaræfing sem brúar bilið á milli hins almenna hversdagsleika og rýmis til sköpunar. Hér verða skoðuð áhrif tékk-inn æfingarinnar á sköpunarferli með unglingum.
    Markmið æfingarinnar er að ná skilyrðislausri hlustun, skilningi á ólíkum hugarheimum einstaklinga og að skapa pláss fyrir óhefta tjáningu. Sköpunarferlið sem hér um ræðir er uppsetning söngleikjarins Mamma Mía með 10. bekkjar árgangi Víðistaðaskóla.
    Inntak og markmið tékk-inn æfingarinnar verða tengd við fræði úr ýmsum áttum; þar á meðal kennslufræði, heimspeki og leiklist en einnig verða Aðalnámskrá grunnskóla og grunnþættir menntunar skoðaðir í tengslum við æfinguna.
    Unnið verður úr upptökum fyrstu og síðustu tékk-inn æfingar sköpunarferlisins og út frá því verða niðurstöður túlkaðar og ræddar.
    Markmið verkefnisins í heild er að sýna fram á að tékk-inn æfingin hafi styrkjandi áhrif á einstaklinginn, stuðli að aukinni sjálfsþekkingu og hafi samræmandi áhrif á hópa.
    Sumar hugsanir búa í hugarheimi einstaklings en fá aldrei að verða að orðum. Eiga einhverjar þeirra sér tilverurétt en vantar aðstæður til að heyrast?
    Í gegnum tékk-inn æfinguna tengjumst við sem hópur, drögum okkur frá hinu almenna og inn í nýja orku: Sköpunarorku.

Accepted: 
  • Oct 1, 2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23097


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Mér liggur á hjarta.pdf1,61 MBOpenHeildartextiPDFView/Open