is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23104

Titill: 
  • Verkþáttaáætlun fyrir sérsmíðaðar vörur hjá Marel
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í rannsókninni var framleiðsluferli sérsmíðaðra vara hjá Marel skoðað. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort að hægt væri að stytta afhendingartíma varanna með því að lágmarka þá bið sem myndast í framleiðsluferlinu. Einnig var skoðað hvernig hægt væri að auka yfirsýn framleiðslustjóra yfir framleiðsluna. Niðurstöðurnar sýndu að í framleiðsluferlinu eru til staðar biðir sem hægt er að lágmarka. Það eru því tækifæri til staðar til að stytta afhendingartímann. Til þess að það sé mögulegt þarf að bæta áætlunargerð og yfirsýn fyrirliða og framleiðslustjóra. Til að byrja með þarf að flokka sérsmíðuðu vörurnar í staðlaða flokka og skrá þekkingu starfsmanna um framleiðslutíma og undanfaraskorður verkþátta sem vinna þarf við framleiðslu varanna. Þegar því er lokið er hægt að nota þá þekkingu til að setja upp framleiðsluáætlun. Mikilvægt er að framleiðsluáætlunin sé sýnileg og að hún sé uppfærð reglulega. Þannig er hægt að fylgjast með stöðu vara í vinnslu og fá þannig betri yfirsýn yfir framleiðslu sérsmíðaðra vara hjá Marel. Framleiðslustjórarar myndu nota framleiðsluáætlunina til þess að áætla starfsmannaþörf og afhendingardagsetningar verka. Betri áætlunargerð leiðir af sér að auðveldara er að minnka slaka í kerfinu og afhendingartíminn styttist.

Samþykkt: 
  • 2.10.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23104


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MSc Rut Valgeirsdóttir.pdf1.6 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna