Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/23115
Verkefni þetta er 30 (ECTS) eininga lokaverkefni til meistaraprófs í mannauðsstjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.Rannsókn þessi fjallar um hvaða þættir verða til þess að synir feta í fótspor feðra sinna á vinnumarkaði og á hvaða hátt þeir upplifa vinnuna. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru níu viðtöl við syni sem allir eiga það sameiginlegt að hafa fetað í fótspor feðra sinna á vinnumarkaði. Þátttakendur rannsóknarinnar starfa í mismunandi starfsstéttum, eru á ólíkum aldri og með mismunandi langt nám að baki, en eiga það allir sameiginlegt að hafa menntað sig í sömu starfsgrein og feður þeirra. Í rannsókninni var gerð krafa um ígrundað starfsval, og var litið svo á að nám í viðkomandi starfsgrein væri ígrundað starfsval. Í rannsókninni var notast við hálfopin viðtöl, þar sem útbúinn var fyrirfram ákveðinn viðtalsrammi.
Í verkefninu var einnig farið yfir fræðilega umfjöllun um starfsáhuga með tilliti til vals á starfsvettvangi og kynntar kenningar helstu fræðimanna á því sviði. Litið var sérstaklega til áhrifaþátta forystu, bernsku, starfsánægju og hvatningar.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að það umhverfi sem þátttakendur rannsóknarinnar ólust upp við í bernsku hafi verið nokkur orsakavaldur í vali þeirra á starfsvettvangi og hafi haft umtalsverð áhrif á þá ákvörðun þeirra að feta í fótspor feðra sinna. Þekking á viðkomandi starfsgrein og jákvæð upplifun í garð starfs föðurins komu einnig fram sem sameiginlegur áhrifaþáttur. Feður þátttakenda eiga allir sameiginlegt að hafa sterk persónuleikaeinkenni og búa yfir leiðtogahæfileikum. Auk þess litu synirnir á þá sem fyrirmynd sína, þó sérstaklega þegar þeir voru að alast upp. Þátttakendur rannsóknarinnar upplifðu flestir jákvætt viðhorf til starfs síns, voru ánægðir í starfi, og litu á starf sitt sem framtíðarstarfsvettvang.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ms ritgerð í mannauðsstjórnun Í fótspor feðranna.pdf | 535,27 kB | Lokaður til...18.09.2025 | Heildartexti |