en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/23115

Title: 
  • Title is in Icelandic Í fótspor feðranna: Rannsókn á ástæðum þess að synir feta í fótspor feðra sinna á vinnumarkaði
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Verkefni þetta er 30 (ECTS) eininga lokaverkefni til meistaraprófs í mannauðsstjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.Rannsókn þessi fjallar um hvaða þættir verða til þess að synir feta í fótspor feðra sinna á vinnumarkaði og á hvaða hátt þeir upplifa vinnuna. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru níu viðtöl við syni sem allir eiga það sameiginlegt að hafa fetað í fótspor feðra sinna á vinnumarkaði. Þátttakendur rannsóknarinnar starfa í mismunandi starfsstéttum, eru á ólíkum aldri og með mismunandi langt nám að baki, en eiga það allir sameiginlegt að hafa menntað sig í sömu starfsgrein og feður þeirra. Í rannsókninni var gerð krafa um ígrundað starfsval, og var litið svo á að nám í viðkomandi starfsgrein væri ígrundað starfsval. Í rannsókninni var notast við hálfopin viðtöl, þar sem útbúinn var fyrirfram ákveðinn viðtalsrammi.
    Í verkefninu var einnig farið yfir fræðilega umfjöllun um starfsáhuga með tilliti til vals á starfsvettvangi og kynntar kenningar helstu fræðimanna á því sviði. Litið var sérstaklega til áhrifaþátta forystu, bernsku, starfsánægju og hvatningar.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að það umhverfi sem þátttakendur rannsóknarinnar ólust upp við í bernsku hafi verið nokkur orsakavaldur í vali þeirra á starfsvettvangi og hafi haft umtalsverð áhrif á þá ákvörðun þeirra að feta í fótspor feðra sinna. Þekking á viðkomandi starfsgrein og jákvæð upplifun í garð starfs föðurins komu einnig fram sem sameiginlegur áhrifaþáttur. Feður þátttakenda eiga allir sameiginlegt að hafa sterk persónuleikaeinkenni og búa yfir leiðtogahæfileikum. Auk þess litu synirnir á þá sem fyrirmynd sína, þó sérstaklega þegar þeir voru að alast upp. Þátttakendur rannsóknarinnar upplifðu flestir jákvætt viðhorf til starfs síns, voru ánægðir í starfi, og litu á starf sitt sem framtíðarstarfsvettvang.

Description: 
  • Description is in Icelandic Viðskiptafræðideild hefur samþykkt lokaðan aðgang að ritgerðinni til 18. september 2025.
Accepted: 
  • Oct 6, 2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23115


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Ms ritgerð í mannauðsstjórnun Í fótspor feðranna.pdf535,27 kBLocked Until...2025/09/18HeildartextiPDF