is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/23170

Titill: 
  • Þjónustusókn og samfélagsábyrgð í dreifbýli
Útgáfa: 
  • Október 2015
Útdráttur: 
  • Árið 2014 gerði Þekkingarnet Þingeyinga samfélagsrannsókn á svæðinu frá Jökulsá að Bakkafirði og einnig meðal íbúa Húsavíkur. Í rannsókninni var spurt um ýmsa þætti þjónustusóknar, s.s. hvert íbúar sækja matvöruverslun og heilbrigðisþjónustu. Þá var einnig spurt um ábyrgð á heimilisstörfum, aðstoð við heimanám barna, foreldrastarf og samfélagsábyrgð. Þar voru kynjabreytur skoðaðar sérstaklega og hvernig þessi ábyrgð skiptist á milli kynjanna. Oft er rætt um að konur kjósi síður að búa á landsbyggðinni og því er forvitnilegt að skoða þessa þætti. Niðurstöður könnunarinnar voru mjög áhugaverðar. Meðal annars kom fram að íbúar á svæðinu austan Jökulsár sækja nánast enga þjónustu til Húsavíkur af því sem þó er til staðar heldur fara frekar til Akureyrar. Þá nefna margir að það vanti nýja lágvöruverslun á Húsavík og að slík þjónusta myndi auka viðskipti þeirra þar. Einnig gera margir íbúar Húsavíkur stórinnkaup utan heimabyggðar þó að lágvöruverslunin Kaskó sé á staðnum. Í rannsókninni kom skýrt fram að ábyrgð á foreldrastarfi og almennum heimilisstörfum hvílir enn meira á konum en körlum en svipuð ábyrgð hvíldi á kynjunum þegar kom að pólitískri þátttöku sem endurspeglar samt ekki hlutfall í sveitarstjórnum á svæðinu.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XVI: Félags- og mannvísindadeild
ISBN: 
  • 978-9935-424-19-8
Samþykkt: 
  • 30.10.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23170


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
FELMAN_gretabergrun_olihalldorsson.pdf467,89 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna