is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23219

Titill: 
  • Hreyfing unglinga í 8. bekk í Vesturbæ Reykjavíkur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hreyfing unglinga í 8. bekk í Hagaskóla í Reykjavík
    Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvaða aðgerðir nemendur í 8. bekk í Hagaskóla telja nauðsynlegar til að þeir hreyfi sig meira. Þannig vill rannsakandi setja fram aðgerðaáætlun sem byggir á hugmyndum þeirra og þeirri þekkingu sem vísindalegar rannsóknir hafa aflað á þessu sviði.
    Rannsóknarspurningarnar hljóða svo: Hvaða íþróttagreinar eða hreyfingu stunda 14 ára börn í Vesturbæ Reykjavíkur? Er munur á hreyfimynstri kynjanna? Hvað telja börnin að hægt sé að gera til að auka hreyfingu þeirra?
    Niðurstöður leiddu í ljós að hreyfing þátttakenda var mikil, 90% þeirra stunduðu íþróttir og þar af voru 74% sem gerðu það fjórum sinnum í viku eða oftar. Algengustu íþróttagreinarnar voru fótbolti og körfubolti. Hlutfallslega fleiri drengir stunduðu íþróttir og einnig mátti greina mun á hreyfimynstri kynjanna í frímínútum þar sem drengirnir hreyfðu sig meira en stúlkurnar. Aðspurðir um hvaða breytingar á nærumhverfi sínu þátttakendur vildu helst sjá með tilliti til frekari hreyfingar voru það hindranabraut í vatni (e. wipeout), skólahreystibraut, fleiri sparkvellir, líkamsræktarstöðvar og körfuboltavellir sem fengu mestar undirtektir.
    Út frá niðurstöðunum má álykta að unnt sé að auka áhuga barnanna á Sundlaug Vesturbæjar, sé hún gerð meira aðlaðandi og gjaldið ef til vill haft lægra. Einnig mætti auka hreyfingu barnanna með því að kynna hlaupaleiðir í hverfinu og kenna æfingar með eins konar snjallforriti. Með úrbótum í hverfinu, bættri aðstöðu á skólalóð og breyttu fyrirkomulagi á frímínútum eru líkur á að hreyfing barnanna aukist.

Samþykkt: 
  • 17.11.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23219


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bjarni Jóhannsson - Lokaverkefni.MEd.próf.pdf1.74 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna