is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/23339

Titill: 
  • Viðbrögð Rauða krossins á Íslandi í kjölfar efnahagskreppu árið 2008
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rauði krossinn er fjöldahreyfing sem hefur víðtæka reynslu af að aðstoða þolendur náttúrulegra hamfara. Á Íslandi var litið á efnahagskreppuna sem hamfarir af mannavöldum og brugðist var við líkt og um hamfarir væri að ræða. Tilgangur þessarar rannsóknar sem er tilviksrannsókn, var að fá skýrari mynd af viðbrögðum Rauða krossins á Íslandi í kjölfar efnahagskreppu árið 2008. Verkefnið byggist á eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem viðtöl voru tekin við þrjá einstaklinga sem voru þjónustunotendur og sjálfboðaliðar á þeim tíma, auk rýnihópaviðtals við starfsfólk félagsins. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna viðhorf, reynslu og gildismat starfsfólks og sjálfboðaliða Rauða krossins til viðfangsefnisins. Helstu niðurstöður voru þær að Rauði krossinn viðurkenndi vandann og fór strax í viðbragðsstöðu. Áhersla var á að styðja atvinnuleitendur til að sporna gegn neikvæðum félagslegum og heilsufarslegum afleiðingum sem fylgja oft langvarandi atvinnuleysi. Einnig var áhersla á þá sem stóðu höllum fæti vegna stöðu sinnar í samfélaginu. Auk margvíslegra aðgerða í formi stuðnings og þjónustu eftir að kreppan hélt innreið sína í landið, kom í ljós að fyrir efnahagshrunið 2008, hafði félagið boðað til málþings til að ræða greiðsluerfiðleika heimilanna og alvarleika málsins. Samstarf var við ríki, sveitarfélög, önnur samtök og stofnanir og viðmælendur voru sammála um samfélagslegt mikilvægi aðgerða Rauða krossins. Þjónustunotendur töldu sérstaklega mikilvægt að hafa fengið tækifæri til þess að hafa hlutverk og hjálpa öðrum á sama tíma. Samvinna starfsmanna og sjálfboðaliða þótti takast vel til. Heyra mátti á viðmælendum að velvilji var til Rauða krossins í samfélaginu og sá mikli kraftur mannauðs sem einkennir félagið var það sem stóð upp úr í hugum flestra. Sú þekking og reynsla sem skapaðist er talin nýtast vel í öðrum verkefnum Rauða krossins.

  • Útdráttur er á ensku

    The Red Cross is an international humanitarian movement and has extensive experience in assisting victims of natural disasters. The recession in Iceland was considered a man-made disaster and the reaction was in accordance to that. The purpose of this case study is to paint a clear picture of the Icelandic Red Cross' response to the Icelandic financial recession in 2008. The research is based on qualitative research methods. Three people who either utilized the service or worked as volunteers at that time were interviewed along with a focus group of employees from the Icelandic Red Cross. The aim of the research was to explore the attitude, experience and values of employees and volunteers towards this subject. The main results are that the Red Cross acknowledged the problem and reacted immediately. They emphasized assistance for the unemployed in order to prevent negative social and health issues, which are often consequences of long-term unemployment. They also emphasized supporting those who were in dire need because of their social status. Apart from various measures taken in support of and service for those who needed it most in the aftermath of the financial crisis it turned out that before the crisis in 2008, the Red Cross had hosted a symposium on the financial difficulties of Icelandic families and how serious the problem was. They cooperated with the government, communities, other organizations and institutes, and the people who were interviewed all agreed on the importance of the actions taken by the Red Cross'. Those who utilized the service found it very important to have received this opportunity and also valued the opportunity to be able to help others at the same time. The cooperation between employees and volunteers is considered to have been successful. It can be deduced from those who were interviewed that the Icelandic society is pleased with the Red Cross and the strength of the great people that characterize the organization is what stands out most of all. There is a further belief that the knowledge and experience the Red Cross gained will be beneficial in all future endeavours.

Samþykkt: 
  • 16.12.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23339


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_Berglind Karitas_2. maí 2016.pdf907,35 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna