is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23445

Titill: 
  • Stuðningur hins opinbera við afreksíþróttafólk
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig stuðningur hins opinbera er við afreksíþróttafólk hér á landi. Við gerð rannsóknarinnar var stuðst var við bæði opinber og fyrirliggjandi gögn, auk þess tók höfundur eigindleg viðtöl við þrjá ólíka afreksíþróttamenn og bað þá um að segja frá upplifun sinni á stuðningi hins opinbera. Til þess að tryggja það að höfundur fengi víða sýn á málið valdi höfundur afreksíþróttafólk af báðum kynjum, úr mismunandi keppnisgreinum og lagði fyrir þau staðlaðan spurningalista. Markverðustu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að stuðningur við afreksíþróttafólk hér á landi sé ekki nægilegur en afreksíþróttafólkið sem rætt var við lýsti því að þau þyrftu íþróttarinnar vegna að búa við þröngan kost eða vera upp á foreldra sína komna langt fram á fullorðinsár. Niðurstöður sýna einnig að þeir fjármununir sem eyrnamerktir séu íþróttamálum í fjárlögum Alþingis séu langt frá því sem þekkist á Norðurlöndunum. Samkvæmt rannsókn þessari er hægt að álykta að nauðsynlega þurfi að gera töluverðar umbætur á kjörum afreksíþróttafólks bæði varðandi mánaðarlegan framfærslukostnað og almenn lýðréttindi sem eðlileg þykja á venjulegum vinnumarkaði.

Samþykkt: 
  • 6.1.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23445


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sigurður Þór Reynisson.pdf586.49 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Sigurður_Þór.pdf402.17 kBLokaðurYfirlýsingPDF