Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23450
Í ritgerðinni er fjallað um prófkjörin sem haldin eru í New Hampshire ríki í Bandaríkjunum og metið mikilvægi þeirra í forvali forsetakosninga. Tekin eru til skoðunar tilvik þar sem óvænt úrslit hafa orðið í ríkinu og skýrt út hvaða þættir leiddu til þeirra en oft hefur niðurstaða kosninga verið öðruvísi en búist var við. Fjallað er um hvaða áhrif röðun ríkjanna í forkosningaferlinu hefur á mikilvægi þeirra. Þá er útskýrt hvaða hlutverki kjörmannakerfi Bandaríkjanna gegnir í stjórnmálakerfinu og hvaða afleiðingar það hefur haft fyrir lýðræði. Ritgerðin er byggð á fyrirliggjandi heimildum og rannsóknum. Helstu niðurstöður eru að þrátt fyrir breytingar á forkosningaferlinu seinustu áratugi þá hefur New Hampshire ríki meiri áhrif en önnur ríki í forvalinu og getur því talist mikilvægast ef þau eru borin saman. Hins vegar hefur sú þróun er varðar framhleðslu forkosninga gert það að verkum að mikilvægi þess hefur minnkað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskjal.pdf | 431.82 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_HermannFreyr.pdf | 424.33 kB | Lokaður | Yfirlýsing |