is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2347

Titill: 
  • Nord Pool raforkumarkaðurinn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Nord Pool er markaður með raforkusamninga fyrir það rafmagn sem framleitt er á Norðurlöndunum. Aðildarríki eru Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland. Fyrstu þjóðirnar til að hefja samstarf voru Noregur og Svíþjóð og markaði það upphaf að alþjóðlegum viðskiptum með rafmagn á Norðurlöndum og í raun fyrsta alþjóðlega markaðnum með rafmagn.
    Á Nord Pool er hægt að versla með ýmsar tegundir raforkusamninga. Nord Pool Spot er markaður með samninga þar sem afhending á raforkunni er innifalin en Nord Pool ASA er markaður með fjármálagerninga þar sem undirliggjandi eignin eru þeir samningar sem er verslað með á Nord Pool Spot.
    Helstu kostir þess að hafa sameiginlegan markað eru möguleikarnir sem skapast fyrir fyrirtæki að koma framleiðslu sinni í verð og kemur í veg fyrir að skortur myndist í löndunum. Þannig hleypur eitt land undir bagga þegar þörf er á raforku í öðru landi.
    Markaðssvæðið er þó ekki fullþróað því enn eru mismunandi raforkuverð eftir svæðum og löndum. Helstu ástæður þess eru þær að löggjöf er mismunandi í löndunum, auk þess sem flöskuhálsar eru í sameiginlegu dreifikerfi sem veldur hækkandi verði á sumum svæðum.
    Ýmsir þættir hafa áhrif á verðmyndun á rafmagni. Framleiðsluaðferðir eru mismunandi í löndunum og er það ein af ástæðum fyrir því að verslun verður hagkvæm.
    Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að úrkoma og verð á kolefniseiningum hefur áhrif á verðmyndun á raforku ef litið á kerfisverð á markaðnum. Greining á öðrum þáttum hefur ekki marktæk áhrif samkvæmt niðurstöðum, en líkur eru á að skortur á gögnum hafi ekki leitt í ljós skýrari niðurstöður.
    Það mat höfundar að markaðurinn sé af hinu góða og alþjóðlegt samstarf sé löndunum til framdráttar. Samstarfið verður til þess að hagkvæmasta leiðin er farin í framleiðslu á hverjum tíma og verður til þess að samnýta auðlindir. Samnýtingin ætti að nýtast svæðinu við að hámarka hag neytenda og virka hvetjandi á framleiðendur til að finna nýjar hagkvæmari leiðir þar sem markaðurinn er orðinn fjölþjóðlegur og stærri markaður virki hvetjandi á tengda aðila.

Samþykkt: 
  • 30.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2347


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nord Pool Raforkumarkaðurinn.pdf844.13 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna