is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Lýðheilsuvísindi >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26969

Titill: 
  • Samsvörun milli alvarleika tannátu meðal 12 og 15 ára barna (DMFT/S) og tannátu í lykiltönnum.
  • Titill er á ensku The consistency between the severity of dental caries among 12- and 15-year old children (DMFT/S) and caries in key teeth.
Útdráttur: 
  • Ágrip
    Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að skoða staðsetningu og dreifingu tannátu og kanna hvort hægt sé að benda á lykiltennur eða fleti tanna við mat á tannátu hjá 12 og 15 ára börnum í gögnum MUNNÍS (VSN 03-140) 2005.
    Tilgátan er: Staðsetning tannátu í ákveðnum tönnum eða flötum tanna gefur til kynna heildarmagn tannátu hjá viðkomandi einstaklingi.
    Rannsóknarspurningin er: Hvaða tennur og fletir eru oftast með tannátu og er hægt að finna lykiltennur til greiningar á tannátu hjá 12 og 15 ára börnum?
    Aðferðir og efniviður: Gögn um tannátu hjá 12 og 15 ára börnum sem skoðuð voru í MUNNÍS (VSN 03-140) 2005 voru greind til að meta dreifingu á tannátu og til að finna hvort hægt væri að benda á lykiltennur til greiningar á tannátu hjá börnum. Upplýsingar um 1.388 börn voru skoðuð. Notuð var núll þanin Poisson aðhvarfsgreining, kí-kvaðrat próf, hlutfall rétt flokkað, Cohen´s Kappa og næmi og sértæki til að meta gögnin.
    Niðurstöður: Sex ára jaxlar höfðu oftast fyllingu eða tannátu sem náði inn í tannbein hjá bæði 12 og 15 ára börnum. Ef litið var til framtanna í efri gómi voru hliðarframtennur með mest af byrjandi tannátu í glerungi hjá báðum aldurshópum. Framtennur neðri góms voru með minnst af fyllingum og tannátu hjá þessum aldurshópum. Hjá bæði 12 og 15 ára börnunum voru 12 ára jaxlar næst á eftir 6 ára jöxlum hvað varðar fjölda fyllinga og tannátu sem náði inn í tannbein.
    Þegar fjórir til átta jaxlar voru skoðaðir sjónrænt og bornir saman við bestu skoðun (samsett sjónræn skoðun og röntgenskoðun) var næmi þess 0,69-0,77, hlutfall rétt flokkað 0,737-0,839 og Kappa 0,53-0,63. Skimun á öllum tönnum gaf næmið 0,788, hlutfall rétt flokkað 0,841 og Kappa 0,65 samanborið við bestu skoðun í gögnum MUNNÍS en 38,7% þeirra sem voru greind án tannátu með sjónrænni skimun allra tanna voru í raun með tannátu við bestu skoðun.
    Ályktun: Gæði skimunar allra tanna með sjónrænni skoðun eru ekki góð og gefur ekki rétta mynd af tannheilsu einstaklingsins þannig að ekki er réttlætanlegt að benda á ákveðnar lykiltennur fyrir þannig skimun.

  • Útdráttur er á ensku

    Abstract
    Objective: The objective of this research was to analyse the location and distribution of dental caries to determine if it would be possible to find key teeth or tooth surfaces in the assessment of dental caries in 12- and 15-year old children from the MUNNIS data (VSN 03-140) in 2005.
    The hypothesis is: Location of dental caries in certain teeth or tooth surfaces could indicate the total amount of dental caries in that individual.
    The research question is: Which teeth and tooth surfaces most often have dental caries and is it possible to find key teeth for the diagnosis of dental caries in 12- and 15-year old children?
    Methods: Data on dental caries in 12- and 15-year old children surveyed in MUNNIS (VSN 03-140) in 2005 were analysed (N=1.388 children) to see the distribution of dental caries and to analyse if it would be possible to find key teeth for the diagnosis of dental caries in children. Zero Inflated Poisson Regression, Chi-square tests, Agreement, Cohen´s Kappa and Sensitivity and Specificity were used to analyse the data.
    Results: First molars were most often affected by dental caries in both 12- and 15-year old children. Looking at the front teeth in the upper jaw, lateral incisors were those most at risk for dental caries in both age groups. Canines and incisors in the lower jaw were the least affected teeth in these age groups. In both 12-year old and 15-year old children, second molars were next to first molars when scoring the teeth most affected by dental caries.
    When four to eight molars were examined visually and compared with combined visual and X-ray examination then the sensitivity was 0.69-0.77, Agreement 0.737-0.839 and Kappa 0.53-0.63. Screening all teeth gave sensitivity of 0.788, Agreement of 0.841 and Kappa of 0.65 compared with combined visual and X-ray examination in MUNNIS data and 38.7% of those diagnosed without caries did in fact have caries.
    Conclusion: The quality of screening all teeth by visual examination is not good enough to allow one to point out certain key teeth for such screening and the screening do not give an accurate picture of the individuals dental health.

Samþykkt: 
  • 12.4.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26969


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MPH-ritgerd-svanhvit-d-saem-pre.pdf1.49 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman_yfirlysing_10 (1).pdf17.38 kBLokaðurYfirlýsingPDF