Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/23856
Markmið þessarar rannsóknar var að reyna að varpa ljósi á í hverju munurinn liggur helst á einkareknum leikskólum og almennum leikskólum hvað varðar rekstur, námskrá og samskipti við foreldra að mati stjórnenda.
Rannsóknin var eigindleg og þátttakendur voru sex leikskólastjórar sem starfa í leikskólum á Stór Reykjavíkursvæðinu. Þrír þeirra eru stjórnendur í almennum leikskólum sem sveitarfélögin reka og þrír eru stjórnendur í einkareknum leikskólum sem hafa einnig reynslu af stjórnun í almennum leikskólum. Gagna var aflað með viðtölum við þessa aðila. Gagnaöflun fór fram í mars 2015.
Meginniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að aðkoma sveitar-félaga að rekstri bæði einkarekinna og almennra leikskóla hafi mikið að segja fyrir rekstrargrundvöll þeirra. Stjórnendur í einkareknu leikskólunum hafa meira svigrúm, frelsi og sjálfstæði til að taka ákvarðanir um ýmis mál tengd starfsemi leikskólanna og eru ekki bundnir með sama hætti í kerfi stjórnsýslunnar og almennu skólarnir. Stjórnendur í almennu leikskólunum kalla eftir meira frelsi og sjálfstæði til ákvarðana. Stjórnendur í einkareknu leikskólunum hafa meira svigrúm til að borga starfsfólki hærri laun og bjóða ýmis hlunnindi umfram þau sem er að finna í almennu leikskólunum.
Tækifæri til faglegrar þróunar er til staðar í báðum skólagerðum en stjórnendur í einkareknu leikskólunum hafa meira svigrúm til að halda fleiri fundi með starfsmönnum eftir vinnu. Stjórnendur í báðum skólagerðum leita til síns baklands um ráðgjöf og stuðning í starfi og ekki er mikið um samskipti á milli skólastjórnenda ólíkra skólagerða. Allir leikskólastjórarnir, óháð skólagerðum, leggja áherslu á góð samskipti og samstarf við foreldra. Í einkareknu leikskólunum gátu stjórnendur frekar en í almennu leikskólunum mætt þörfum foreldra með fundum eftir vinnu eða á laugardögum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Helga Björk Jóhannsdóttir -Mastersritgerð..pdf | 828.41 kB | Open | Heildartexti | View/Open |