Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/23867
Verðmatsaðferðir hafa skipað stóran sess í hlutabréfamörkuðum heimsins seinustu aldir. Þær eru notaðar til þess að verðmeta innra virði hluta ákveðinna fyrirtækja, bera kennsl á vanmetin og ofmetin hlutabréf og leggja því grunninn í ákvarðanatöku fjárfesta varðandi einstaka fjárfestingar.
Til eru margar ólíkar verðmatsaðferðir en þær algengustu eru eflaust arðgreiðslulíkön, sjóðstreymislíkön, afgangsafkomulíkön og kennitölugreiningar. Þegar kemur að verðmati ákveðins fyrirtækis skiptir val á verðmatsaðferð miklu máli þar sem þær eru líklegar til að skila mismunandi niðurstöðum. Í ritgerð þessari kannar höfundur hvort munur sé á niðurstöðum þessara helstu verðmatsaðferða þegar Icelandair Group hf. er verðmetið, hvort munur sé á niðurstöðum þeirra annarsvegar og markaðsvirði fyrirtækisins hinsvegar og í því samhengi hvaða verðmatsaðferð það sé sem skilar niðurstöðu sem er næst markaðsvirði fyrirtækisins.
Í ljós kom að mikill munur var á niðurstöðum verðmatsaðferðanna og að Frjálst fjárflæði til fyrirtækis líkanið var eina líkanið sem skilaði niðurstöðu sem var tiltölulega nálægt markaðsvirði Icelandair Group hf.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Icelandair Group hf. - Innra virði vs. Markaðsvirði hlutabréfa.pdf | 2.11 MB | Open | Heildartexti | View/Open |