Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/23934
Ritgerðin fjallar um beitingu 1. mgr. 37. gr. samningalaga í dómum Hæstaréttar. Þarf sem ákvæðið er matskennt er litið til þess hve víðtæka skuldbindingu ákvæðið felur í sér hverju sinni. Annars vegar til að varna samkeppni og hins vegar hvort að atvinnufrelsi þess, sem tekur skylduna sér á herðar sé skert með ósanngjörnum hætti.
Fjallað verður um tengsl ákvæðisins við gagnkvæma tillitsskyldu samningsaðila, sem er ein að ólögfestum meginreglum samningaréttar. Auk þess verða tengsl ákvæðisins skoðuð, annars vegar við atvinnufrelsisákvæði 75. gr. stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og hins vegar meginreglna samningaréttar um skuldbindingargildi samninga og samningsfrelsi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Helga Einarsdóttir.pdf | 379.03 kB | Lokaður til...01.04.2025 | Heildartexti | ||
Yfirlýsing_Helga.pdf | 297.48 kB | Lokaður | Yfirlýsing |