Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/24339
Markmiðið með þessari ritgerð er að kanna mikilvægi myndvefnaðar sem verkfæris í femínískri baráttu. Það er gert með því að skoða innlegg Hildar Hákonardóttur til kvennabaráttu. Leitast er við að skoða samspil kvennabaráttu og myndlistar í lífi listakonunnar og það sett í samhengi við stöðuna í dag. Rýnt er í þróun femínismans þar sem verk og skoðanir Hildar eru sett í fræðilegt, sögulegt og femínískt samhengi. Það er gert með því að greina þróun kvennabaráttunnar og sér í lagi þær þjóðfélagslegu hræringar sem áttu sér stað í kringum árið 1975 þegar barátta Rauðsokkahreyfingarinnar stóð sem hæst. Helstu niðurstöður eru þær að Hildur nýtti listformið myndvefnað til femínískrar og pólitískrar baráttu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð 3A m.myndum.pdf | 2.84 MB | Open | Heildartexti | View/Open | |
Yfirlýsing_Svanhildur.pdf | 298.93 kB | Locked | Yfirlýsing |