Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/24417
Í þessari heimildaritgerð er sjónum beint að skaðaminnkunarnálgunum fyrir vímuefnaneytendur. Fjallað verður um hugmyndafræði skaðaminnkunar, stefnur, vímuefnavanda og árangur í vímuefnamálum. Þrjú lönd verða borin saman Ísland, Holland og Noregur og skoðað hvað þessi lönd eiga sameiginlegt og hvað er ólíkt varðandi vímuefnamál. Leitast var við að skoða hvar Íslendingar stæðu í málaflokki skaðaminnkunarúrræða miðað við önnur lönd og hvaða úrræði hentuðu á Íslandi. Niðurstöður sýndu að Íslendingar standa heldur að baki hollendingum og norðmönnum en samt sem áður eru nokkur úrræði rekin á Íslandi sem flokkast til skaðaminnkunarúrræða. Niðurstöður sýndu einnig að þau úrræði sem eru til staðar á Íslandi þjóna ágætlega tilgangi sínum og þróunin vegna vímuefnasjúkra virðist vera í átt til skaðaminnkunar.
Lykilhugtök: Skaðaminnkun, vímuefnasjúkir, úrræði, vímuefnameðferð, nálaskiptaþjónusta, sprautur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerðin mín.pdf | 552.83 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_SvanurHeiðar.pdf | 289.63 kB | Lokaður | Yfirlýsing |