is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Umhverfis- og auðlindafræði >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/24494

Titill: 
  • Sjálfbær og vistvænn rekstur: Þekking og viðhorf viðskipta- og hagfræðinga
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Áherslur á það sem kalla má sjálfbæran eða vistvænan rekstur verða stöðugt mikilvægari í rekstri fyrirtækja. Í rannsókninni er leitast við að gera grein fyrir stöðu þekkingar og fræðslu hjá viðskipta- og hagfræðingum varðandi sjálfbæran og vistvænan rekstur. Jafnframt er viðhorf til áhrifa sjálfbærs og vistvæns rekstrar á fyrirtæki kannað og skoðað hvaða þættir stuðla að áherslum á slíkan rekstur. Staða þekkingar hjá viðskipta- og hagfræðingum á Íslandi á sjálfbærum og vistvænum rekstri hefur, að bestu vitneskju höfundar, ekki verið könnuð áður en slík könnun var gerð meðal viðskiptafræðinema við Háskóla Íslands. Í þeirri rannsókn mældist þekkingin takmörkuð og það þykir líklegt að hið sama gildi um viðskipta- og hagfræðinga á vinnumarkaði hérlendis.
    Gagna var aflað með tveimur rannsóknaraðferðum, annarsvegar megindlegri spurningakönnun og hinsvegar eigindlegum viðtölum. Spurningakönnunin var lögð fyrir félagsmenn í Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Þátttakendur voru spurður út í þekkingu þeirra á hugtökum tengdum sjálfbærum og vistvænum rekstri, hvaða fræðslu þeir hefðu hlotið á þessu sviði og hvert viðhorf þeirra væri til sjálfbærs og vistvæns rekstrar. Í framhaldi tekin viðtöl við stjórnendur hjá fjórum fyrirtækjum. Viðmælendurnir voru beðnir um að gefa álit sitt á niðurstöðum spurningakönnunarinnar en í viðtölunum komu fram sjálfsprottin þemu varðandi hvata fyrirtækja til að samþætta sjálfbærar og vistvænar áherslur við daglegan rekstur fyrirtækja.
    Helstu niðurstöður voru þær að þekking viðskipta- og hagfræðinga á sjálfbærum og vistvænum áherslum í rekstri er takmörkuð og fáir hafa hlotið fræðslu á þessu sviði. Viðhorf viðskipta- og hagfræðinga til áhrifa sjálfbærra og vistvænna áherslna á rekstur voru frekar neikvæð og þá sérstaklega í garð efnahagslegra áhrifa. Viðmælendur töldu helstu hvata fyrir fyrirtæki til að taka upp áherslur á sjálfbæran og vistvænan rekstur vera efnahagslegan ávinning, ásamt tækifærum á mörkuðum og samkeppnisforskot.
    Niðurstöður rannsóknarinnar eru gott innlegg í fræðilega umræðu sem og þá umræðu sem fer fram á meðal fyrirtækja um stöðu umhverfismála og samfélagsábyrgðar og hvað má betur fara í þessum málaflokkum. Þá nýtast niðurstöður sem innlegg í umræðu um stöðu fræðslu á sviði sjálfbærs og vistvæns rekstrar innan viðskipta- og hagfræðideilda íslenskra háskóla.
    Lykilorð: Sjálfbær rekstur, vistvænn rekstur, samfélagsábyrgð fyrirtækja, umhverfisstjórnun, efnahagslegur ávinningur, samkeppnisforskot.

Samþykkt: 
  • 11.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24494


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Steinunn_Karlsdottir_meistararitgerd_lokaskjal.pdf2,01 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlysing_SteinunnKarlsdottir.pdf442,67 kBLokaðurYfirlýsingPDF