Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24513
Í þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu um hvernig rekstarumhverfi Arctic Adventures hefur áhrif á stefnu þess. Byrjað er á fræðilegri umfjöllun um fyrstu þrjú skref stefnumarkandi áætlunargerðar. Sérstök áhersla verður lögð á rekstarumhverfið og greiningartól þess. Tekið var viðtal við Jón Þór Gunnarsson, framkvæmdarstjóra Arctic Adventures. Hann veitti upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins sem notaðar voru til greiningar á innviðum þess.
Ytra umhverfið verður metið með PESTLE greiningunni og samkeppniskraftalíkani Porters. Virðiskeðjan metur innri starfsemi Arctic Adventures. Allar niðurstöður verða dregnar saman í SVÓT greiningu og túlkaðar í mótun stefnu. Að því loknu er rannsóknarspurningu svarað og niðurstaða gefin.
Helstu niðurstöður rannsóknar voru þær að Arctic Adventures býr yfir góðri samkeppnisstöðu á markaði og ætti vel að geta aukið samkeppnisforskot sitt sé fyrirtækið tilbúið að mæta veikleikum sínum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS-Arctic Adventures.pdf | 822.25 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |