is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24792

Titill: 
  • Fyrirburar á Vökudeild Barnaspítala Hringsins 1996-2014
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fyrirburafæðingar eru um 5-7% fæðinga á Íslandi. Fyrirburar eru í aukinni hættu á öndunarfærakvillum, vanþroskuðu taugakerfi, sjónukvilla o.fl. Áhættan er í öfugu hlutfalli við meðgöngulengd. Rekja má stóran hluta burðarmálsdauða og langtímasjúkleika nýbura til skammrar meðgöngulengdar. Markmið rannsóknarinnar voru (1) að kanna hlutfall fyrirbura sem leggjast inn á vökudeild eftir meðgöngulengd, (2) að kanna hvort hlutfall fæðingarmáta hefur breyst á tímabilinu, (3) að kanna heilsufar mæðra og bera saman við viðmið, (4) að kanna ástand barna við fæðingu og hvort einhver breyting hefur átt sér stað á tímabilinu og (5) áhrif stera á fyrirbura.
    Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra fyrirbura sem lögðust inn á Vökudeild Barnaspítala Hringsins (VBH) 1996-2014 og voru einburar, 1766 börn. Upplýsingar fengust úr Fæðingarskrá Landlæknis og nýburagagnagrunni VBH. Viðmiðunarhópur var fenginn með því að velja næstu þrjár fullburðafæðingar á eftir hverju tilfelli fyrirburafæðingar.

Samþykkt: 
  • 31.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24792


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSRitgerð Margret Lilja Ægisdóttir-lokaútgáfa.pdf907.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlysingBSritgerð.pdf73.86 kBLokaðurYfirlýsingPDF